Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness

Þjónustumiðstöð fyrir íbúa Grafarvogs og Kjalarness
Gylfaflöt 5, 112 Reykjavík
sími: 411-1400
fax: 411 1499
netfang: midgardur@reykjavik.is
http://www.midgardur.is

Opnunartími þjónustumiðstöðvarinnar er alla virka daga frá 8:15 til 16:15

Miðgarður, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness er ein af sex þjónustumiðstöðvum í Reykjavík. Framkvæmdastjóri er Ingibjörg Sigurþórsdóttir.

Hlutverk Miðgarðs er að veita þverfaglega og samræmda þjónustu til íbúa Grafarvogs og Kjalarness um persónuleg málefni, ráðgjöf við starfsfólk leik- og grunnskóla og aðra faglega þjónustu til stofnana og félagasamtaka í hverfunum.  Einnig hefur Miðgarður lagt áherslu á að sinna af krafti forvarnarmálum og ýmsum menningartengdum samfélagsverkefnum.

Með samræmingu á þjónustu vonumst við til að geta veitt íbúum Grafarvogs og Kjalarness góða og markvissa þjónustu.  Í Miðgarði er sérstök áhersla lögð á öflugt samstarf við aðrar stofnanir og félagasamtök í Grafarvogi og á Kjalarnesi.  Má þar nefna grunn- og leikskóla, félagsmiðstöðvar, lögreglu, heilsugæslu, íþróttafélag og kirkju svo eitthvað sé nefnt.

Undir Miðgarði heyrir eftirfarandi starfsemi:

  • Starengi, búsetukjarni fyrir geðfatlaða einstaklinga
  • Gylfaflöt, helgarskammtímavistun
  • Sporhamrar 5, sambýli
  • Vættaborgir 82, sambýli
  • Viðarrimi 42, sambýli
  • Mururimi 4, sambýli
  • Fannafold 178, sambýli
  • Vallengi 2, sambýli
  • Barðastaðir 35, sambýli
  • Holtavegur 27, skammtímavistun
  • Árland 9, skammtímavistun
  • Hólabergi 86, skammtímavistun
  • Eikjuvogur 9, skammtímavistun
  • Álfalandi 6, skammtímavistun fyrir fötluð börn