Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða

Þjónustumiðstöð fyrir íbúa Miðborgar og Hlíða
Skúlagötu 21
101 Reykjavík
sími: 411-1600
fax: 411 1699
netfang: midborg.hlidar@reykjavik.is
midborghlidar

Opnunartími þjónustumiðstöðvarinnar er alla virka daga frá 8:30 til 16:00

Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða er ein af sex þjónustumiðstöðvum í Reykjavík.  Framkvæmdastjóri er Sigtryggur Jónsson.

Hlutverk þjónustumiðstöðvarinnar er að veita þverfaglega og samræmda þjónustu til íbúa í Miðborg og Hlíðum um persónuleg málefni, ráðgjöf við starfsfólk leik- og grunnskóla og aðra faglega þjónustu til stofnana og félagasamtaka í hverfunum.  Þjónustumiðstöðin er þekkingarstöð í fjölmenningu og margbreytileika og hefur á að skipa starfsfólki, sem er sérhæft í málefnum útlendinga og minnihlutahópa.
Með þverfaglegri og samræmdri þjónustu vonumst við til að geta veitt íbúum Miðborgar og Hlíða góða og markvissa þjónustu.  Á þjónustumiðstöðinni er mikil áhersla lögð á öflugt samstarf við aðrar stofnanir og félagasamtök í hverfunum.  Má þar nefna grunn- og leikskóla, félagsmiðstöðvar, lögreglu, íþróttafélög og kirkjur svo eitthvað sé nefnt.

Undir þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða heyrir eftirfarandi starfsemi:

  • Vesturgata 7, félagsmiðstöð 
  • Lindargata 59, félagsmiðstöð, þjónustuíbúðir, dagdeild fyrir minnissjúkdóma og framleiðslueldhús 
  • Langahlíð 3, félagsmiðstöð, þjónustuíbúðir og heimaþjónusta 
  • Bólstaðarhlíð 43, félagsmiðstöð
  • Stigahlíð 54, sambýli
  • Stigahlíð 71, sambýli
  • Skipholt 15-17, áfangastaðir
  • Bergþórugata 41, búsetukjarni fyrir geðfatlaða
  • Lindargata 27, búsetukjarni fyrir geðfatlaða
  • Skarphéðinsgata 14-16, búsetukjarni fyrir geðfatlaða
  • Flókagata 29-31, búsetukjarni fyrir geðfatlaða
  • Njálsgata 74, heimili fyrir heimilislausa karlmenn
  • Snorrabraut 52, brautin - áfangaheimili
  • Skeggjagata 1, Mýrin - heimili fyrir konur
  • Fiskislóð, smáhýsi fyrir utangarðsfólk
  • Miklubraut 18, stuðningsheimili
  • Miklubratu 20, heimili fyrir heimilislausa
  • Þingholtsstræti, gistiskýli 
  • Skúlagata 46, íbúðakjarni fyrir fatlaða
  • Eskihlíð 4, athvarf fyrir heimilislausar konur, Konukot