Vistheimili barna
Á Vistheimili barna - Laugarásvegi geta börn dvalið tímabundið ef þau eða foreldrar þeirra eiga í vanda sem sérstaklega þarf að ráða bót á. Heimilið er opið allan sólarhringinn. Sjö börn geta búið þar í einu auk þess sem þar er lítil íbúð þar sem foreldrar sem þess þurfa geta búið tímabundið með börn sín og fengið stuðning að greiningu lokinni.
Eitt helsta markmið vistheimilisins er að hjálpa foreldrum og börnum til að líða betur saman. Þetta er einkum gert með því að efla foreldrana í að mæta þörfum barna sinna fyrir öryggi, ástúð og örvun og með því að kenna börnunum að virða foreldra sína og reglurnar sem þeir setja. Stundum þarf að grípa með öðrum viðeigandi hætti inn í uppeldisaðstæður barna sem talin eru í sérstakri áhættu.
Heimilið er vaktaskipt, morgunvakt er frá 8 – 15.30 og kvöldvakt frá 15.30 til 11.30. Ein næturvakt er á nóttunni. Hver fjölskylda fær tvo starfsmenn sem tilsjónarmenn þ.e. starfsmenn sem bera aðalábyrgð á vinnu með fjölskyldunni.
Börnin sem koma á vistheimilið eru á mismunandi aldri, allt frá því að vera nýfædd og upp í unglingsaldur. Þau fá sín herbergi, oft þurfa þó tveir eða þrír að vera saman í herbergi. Þau dvelja á vistheimilinu allan sólarhringinn en sækja þó leikskólann eða skólann sinn eins og venjulega. Stundum fara börnin heim um helgar.
Vistheimili barna er til húsa að Laugarásvegi 39
Sími: 581-1024
Forstöðumaður er Sigrún Óskarsdóttir, netfang: sigrun.oskarsdottir@reykjavik.is