Fjölskylduheimilið Ásvallagötu
Fjölskylduheimilið Ásvallagötu er faglegt sérúrræði í erfiðum barnaverndarmálum, þar sem börnum eru búin traust og örugg uppeldisskilyrði. Forstöðumaður býr á heimilinu. Heimilið er ætlað 4 börnum í senn. Tilvísanir koma frá Barnavernd Reykjavíkur.