Þjónustuþættir geðteymis
Hlutverk:
1. Að styðja einstaklinga með geðsjúkdóma í heimahúsum.
2. Að fylgjast með, endurmeta og skrá árangur meðferðar.
Markmið:
1. að tryggja samfellu í meðferð einstaklinga með geðsjúkdóma 18 ára og eldri.
2. að efla sálrænt og félagslegt heilbrigði einstaklingsins og fjölskyldu hans.
3. að reyna að koma í veg fyrir endurinnlagnir á sjúkrahús.
4. að styrkja aðlögunarhæfni eftir útskrift af sjúkrahúsum.
5. að hvetja til sjálfshjálpar og sjálfsvirðingar.
Þjónustuþættir:
1. stuðningur og eftirfylgni vegna sjúkdóms eða útskriftar af geðdeild
2. hvatning og stuðningur til að auka félagslega virkni og tengja við félagsleg úrræði.
3. mat á andlegu og líkamlegu ástandi, búsetu og þjónustuþörf.
4. lyfjagjafir og eftirlit með lyfjainntekt.
5. hvatning og stuðningur til að sinna persónulegum þáttum s.s persónulegu hreinlæti, umhirðu nánasta umhverfis, hreyfingu, mataræði og heilsufarseftirlit (reglulegt eftirlit á heilsugæslu og / eða viðtöl hjá meðferðaraðila).
6. fræðsla og stuðningur til skjólstæðingsins og fjölskyldu hans. Ráðleggingar hvar hægt sé að fá frekari stuðning og fræðslu.
7. samhæfing á þjónustu til einstaklingsins, samskipti við hinar ýmsu stofnanir og þjónustuaðila sem koma að málefnum þjónustuþega.
Umsóknir
Umsóknir um þjónustu eru sendar til;
Heimaþjónusta Reykjavíkur, Álfabakka 16, Mjóddin 109 Reykjavík. Merkt, “geðteymi”.
Jafnframt er hægt að senda með faxi, faxnúmer er 411 9699.
Útskrift
Við þjónustulok er haft samband við þann aðila sem óskaði eftir heimageðhjúkrun og gerð grein fyrir stöðu mála viðkomandi einstaklinga/fjölskyldna.