Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Áherslur velferðarráðs 2009

Núverandi velferðarráð var skipað á fundi borgarstjórnar 21. ágúst 2008.

Áhersluatriði Velferðarráðs árið 2009 eru:

 

  • AÐGERÐIR VEGNA EFNAHAGSAÐSTÆÐNA
    Áhersla verður lögð á grunnþjónustu og sérstakar aðgerðir sem miða að því að efla ráðgjöf og þjónustu við hópa sem lent geta í vanda vegna breytinga í efnahagslífi. Meðal aðgerða má nefna aukið samstarf við ýmsa samstarfs- og hagsmunaaðila, s.s. við Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, og fræðslu fyrir einstaklinga og fjölskyldur, m.a. um aðferðir til að glíma við erfiðar aðstæður. Lögð verður áhersla á að hagræða í starfsemi sviðsins s.s. með breyttri forgangsröðun verkefna, samþættingu verkefna, skipulagsbreytingum eða hverju öðru sem aukið getur hagræði í rekstri án þess að þjónusta við borgarbúa verði skert.

  • SAMEINING HEIMAHJÚKRUNAR OG FÉLAGSLEGRAR HEIMAÞJÓNUSTU
    Stefnt er að sameiningu heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu 1. janúar 2009. Markmiðið með sameinaðri þjónustu er að veita heildstæða og samfellda heimaþjónustu, skapa betri yfirsýn yfir þarfir notenda og einfalda viðmót þjónustunnar. Á árinu 2009 verður unnið að innleiðingu sameiningarinnar með það að leiðarljósi að efla þjónustuna.

  • GEÐFATLAÐIR
    Á árinu 2009 verður áfram unnið að því að byggja upp búsetukjarna og efla þjónustu við geðfatlaða en Reykjavíkuborg tók yfir þjónustu við geðfatlaða á árinu 2008 með sérstökum samningi við ríkið þar um. Samningurinn er hluti af markvissum undirbúningi að fyrirhugaðri yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.

  • HÚSNÆÐISAÐSTOÐ
    Biðlisti eftir félagslegu leiguhúsnæði í Reykjavík hefur lengst á árinu 2008 og má búast við að húsnæðisvandi fólks aukist á næsta ári vegna aðstæðna í samfélaginu. Unnið verður að því á árinu 2009 að draga úr húsnæðisvanda láglaunafólks í Reykjavík en samstillt átak ríkis og sveitarfélaga þarf til að taka á þessum vanda. Sérstakur stýrihópur um húsnæðismál er starfandi á Velferðarsviði og mun stýrihópurinn vinna eftir sérstakri aðgerðaráætlun í húsnæðismálum. Hópurinn mun freista þess að eiga samstarf við ríkið og aðra aðila sem hlut eiga að máli um leiðir til að draga úr húsnæðisvandanum eins og kostur er.

  • MÁLEFNI ALDRAÐRA
    Áfram verður unnið að uppbyggingu í þágu aldraðra í Reykjavík m.a. með því að efla úrræði sem styðja við þær áherslur að fólk geti dvalið sem lengst á eigin heimili og fjölgun þjónustuíbúða. Áhersla verður lögð á að gera öldruðum kleift að laga félagsstarf að eigin þörfum og efla eigið hlutverk í því. Stýrihópur í búsetuúrræðum aldraðra mun starfa áfram.

  • FORVARNIR
    Haldið verður áfram að innleiða forvarnastefnu Reykjavíkurborgar. Í ljósi efnahagsaðstæðna verða áherslur einkum þrjár; að styrkja foreldra í uppeldishlutverki sínu, að meta stöðu og þarfir ungmenna sem ekki eru í námi og samhæfingu þeirra bjarga sem Reykjavíkurborg býr yfir í þjónustu við börn á aldrinum 13 – 16 ára.

  • FRAMKVÆMD STEFNU UM MÁLEFNI UTANGARÐSFÓLKS
    Haustið 2008 samþykkti velferðarráð metnaðarfulla stefnu til næstu ára í málefnum utangarðsfólks. Áfram verður unnið að innleiðingu hennar á árinu 2009.

Sjá nánari í starfsáætlun 2009