Þjónustuhópur aldraðra
Í lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 er kveðið á um að í hverju heilsugæsluumdæmi skuli starfandi þjónustuhópur aldraðra skipaður fulltrúum heilsugæslu, sveitarfélags og samtökum eldri borgara. Að loknum sveitarstjórnarkosningum skal sveitarstjórn skipa í þjónustuhóp aldraðra að fengnum tillögum heilsugæslu og Félags eldri borgara.
Verkefni þjónustuhóps aldraðra eru eftirtalin:
- Að fylgjast með heilsufari og félagslegri velferð aldraðra og samhæfa þjónustu. - Að gera tillögur til sveitarstjórna um öldrunarþjónustu. - Að leitast við að tryggja að aldraðir fái þá þjónustu sem þeir þarfnast og kynna öldruðum þá kosti sem í boði eru. |
Þjónustuhóp aldraðra skipa:
- Ellý A. Þorsteinsdóttir, formaður
- Berglind Magnúsdóttir
- Anna Þrúður Þorkelsdóttir
- Þórunn Ólafsdóttir
- María Ólafsdóttir