Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Virkniverkefni


Styrkir til verkefna sem hvetja til virkni atvinnuleitanda

Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna sem hvetja til virkni atvinnuleitenda.

Við úthlutun styrkjanna verður tekið mið af því að verkefnin nýtist sem flestum, þau séu fjölbreytt og leiði til aukinnar virkni og velferðar þeirra sem fá fjárhagsaðstoð.

Umsóknarfrestir eru þrír á árinu 2011;  15. júní, 15. september og 1. desember. Styrkveiting felur í sér að umsækjendur undirgangist ákvæði reglna Reykjavíkurborgar um styrki, sjá nánar úthlutunarreglur fyrir úthlutun fjármagns vegna virkniverkefna fyrir fólk sem er með fjárhagsaðstoð.

Næsti umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2011

Nánari upplýsingar um sjóðinn veita Auður Vilhelmsdóttir í síma 411 9009, netfang: audur.vilhelmsdottir@reykjavik.is á skrifstofu Velferðarsviðs.

Umsóknareyðublaðið er hér

Vinsamlega sendið umsóknir á netfangið virkniverkefni@reykjavik.is eða til Velferðarsviðs Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík merkt virkniverkefni.

Umsóknarferlið:

  1. Styrkirnir verða auglýstir til úthlutunar þrisvar á árinu. 
  2. Umsóknareyðublaðið er að finna á vefsíðunni reykjavik.is/virkniverkefni
  3. Umsóknum er skilað rafrænt á netfangið: virkniverkefni@reykjavik.is eða þær sendar til Velferðarsviðs, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík merkt: virkniverkefni.
  4. Umsóknir eru metnar og afgreiddar af úthlutunarnefnd.
  5. Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir innan 6 vikna eftir að umsóknarfrestur er liðinn. 
  6. Að úthlutun lokinni er öllum umsækjendum sent bréf um ákvörðun nefndarinnar.