Um verkefnið
Fyrirhugað er að færa þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga 1. janúar 2011. Um er að ræða alla þá þjónustu sem og lagalega ábyrgð sem Svæðisskrifstofur málefna fatlaðra hafa sinnt fram til þessa í samræmi við viljayfirlýsingu sem undirrituð var af ríkisstjórn Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga þann 13. mars 2009.
Hér má sjá viljayfirlýsinguna í heild sinni.
Markmið tilfærslu þjónustu við fatlaða er:
- Bæta þjónustu og auka möguleika til að laga hana að þörfum notenda með hliðsjón af ólíkum aðstæðum
- Tryggja að eitt stjórnsýslustig beri ábyrgð á stærstum hluta almennrar félagsþjónustu, bæta samhæfingu og draga úr skörun ábyrgðarsviða/stjórnsýslustiga
- Stuðla að samþættingu nærþjónustu við íbúa sveitarfélaga
- Styrkja sveitarstjórnarstigið
- Einfalda verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga
Á þessari upplýsingagátt verður að finna upplýsingar um gang yfirfærslu frá ríki til Reykjavíkurborgar. Fram undan er mikil undirbúningsvinna sem margir munu koma að og er ætlunin að birta hér upplýsingar um stöðu mála hverju sinni.