Á landsvísu
Ákvörðun um að hefja endurskoðun milli ríkis og sveitarfélaga var tekin á samráðsfundi ríkis og sveitarfélaga þann 16. febrúar 2007. Frumkvæðið kom frá sveitarfélögunum. Var ákveðið að einbeita sér að þjónustu við fatlaða og aldraða.
Yfirfærslunni er stjórnað sameiginlega af ríki og sveitarfélögum og stýrir verkefnisstjórn skipuð fulltrúum beggja aðila verkefninu, fjallar um greiningu kostnaðarþátta, samningagerð og tímasetningar vegna yfirfærslunnar. Með verkefnisstjórn starfa fagnefndir eftir þörfum. Verkefnisstjórnin var skipuð árið 2007. Enn er ýmissi vinnu ólokið af hálfu verkefnisstjórnar og nefnda á hennar vegum svo sem greiningu á húsnæðismálum, mati á þjónustuþörf.
Félags- og tryggingamálaráðuneyti er með upplýsingasíðu þar sem finna má upplýsingar um yfirfærsluna á landsvísu, fundargerðir og skýrslur.
Hér er slóð á upplýsingasíðu ráðuneytisins: http://www.felagsmalaraduneyti.is/yfirfaersla/
Hér er yfirlitsmynd yfir aðila sem koma að flutningi málefna fatlaðra til Reykjavíkuborgar.
