Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Stýrihópur yfirfærslu málefna fatlaðra

Borgarráð samþykkti þann 18. mars að skipa stýrihóp til að hafa yfirumsjón með yfirfærslu málefna fatlaðra. Í hópnum voru fimm kjörnir fulltrúar. Hópinn skipuðu þau Jórunn Frímannsdóttir, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Valgerður Sveinsdóttir, Björk Vilhelmsdóttir og Þorleifur Gunnlaugsson.

Borgarráðs samþykkti skipan í nýjan stýrihóp vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til borgar þann 8. júlí 2010 og breyttist hópurinn nokkuð sem og verkefni hans og hlutverk. Stýrihópurinn hefur eftir sem áður yfirumsjón með tilfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til borgar en er jafnframt ætlað að tryggja að það tækifæri sem skapast við yfirfærsluna verði nýtt til að bæta aðgengi og þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík í nærumhverfi sínu. Verkefni stýrihóps um yfirfærslu málefna fatlaðra er að greina áhrif yfirfærslunnar á skipulag og þjónustu borgarinnar og vinna að nauðsynlegri stefnumótun, markmiðssetningu og framtíðarsýn vegna breytinganna sem og að tryggja gott samráð við notendur þjónustunnar.

Stýrihópinn skipa: Björk Vilhelmsdóttir, Áslaug Friðriksdóttir, Stella K. Víðisdóttir, Anna Kristinsdóttir og Aðalbjörg Traustadóttir.

Verkefnisstjóri yfirfærslu málefna fatlaðra, María Rúnarsdóttir, er starfsmaður hópsins.

adobe pdf Hér má sjá samþykkt borgarráðs frá 18. mars 2010.

adobe pdf Hér má sjá samþykkt borgarráðs frá 8. júlí 2010.

Fundargerðir:

adobe pdf 2. fundur stýrihóps um yfirfærslu málefna fatlaðra - 26.04.2010

adobe pdf 1. fundur stýrihóps um yfirfærslu málefna fatlaðra - 08.04.2010