Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hvað gerist við yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til Reykjavíkurborgar?

Þjónusta sem nú er veitt af Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík færist til Reykjavíkurborgar.

Starfsmenn Svæðisskrifstofunnar flytjast á starfseiningar Reykjavíkurborgar eftir eðli verkefna sinna.

Þessi þjónusta flyst til Reykjavíkurborgar:

  • Sambýli
  • Áfangastaðir
  • Frekari liðveisla í þjónustu – og íbúðakjörnum
  • Frekari liðveisla í sjálfstæðri búsetu
  • Dagþjónusta sem ekki fellur undir vinnumál
  • Heimili fyrir börn
  • Skammtímavistun barna
  • Stuðningsfjölskyldur
  • Ráðgjöf og önnur stuðningsþjónusta við fatlaða og fjölskyldur þeirra þar meðtaldir styrkir til náms og tækjakaupa 
  • Ekki liggur fyrir ákvörðun um hvað verður með atvinnumál fatlaðra en til stóð að flytja þau undir Vinnumálastofnun.

 

Fjármögnun þjónustu við fatlaða færist til Reykjavíkurborgar.

Í Reykjavík eru nokkrir þjónustuaðilar sem veita fötluðu fólki þjónustu á sviði búsetu, dagþjónustu og atvinnumála:

  • Í Reykjavík rekur Ás styrktarfélag viðamikla þjónustu fyrir fatlað fólk, bæði búsetu og  atvinnu- og dagþjónustu og dagþjónustu fyrir börn. 
  • Blindrafélagið, Múlalundur og Öryrkjabandalag Íslands reka verndaða vinnustaði fyrir fatlað fólk. 
  • Reykjavíkurborg rekur þjónustukjarna fyrir fatlaða, skammtímavistun og lengda viðveru fyrir börn.

 

Fjármagn með þjónustu þessara aðila flyst til Reykjavíkurborgar . Núgildandi þjónustusamningar falla úr gildi 31. desember 2010 og verður það hlutverk Reykjavíkurborgar að semja á nýjan leik um veitingu þjónustunnar.

Hvað gerist ekki?

  • Almannatryggingar verða áfram á hendi Tryggingastofnunar ríkisins.
  • Hjálpartækjamiðstöð verður áfram rekin af Tryggingastofnun ríkisins.
  • Þjónusta sjálfseignarstofnana eins og Áss styrktarfélags flyst ekki til sveitarfélagsins, bara fjármagnið sem veitt er til þjónustu við fatlaða.
  • Tölvumiðstöð fatlaðra verður óbreytt.

 

Kostir við flutning þjónustu við fatlað fólk frá ríki til Reykjavíkurborgar:

  • Þjónusta við fatlað fólk verður veitt af einum þjónustuaðila.
  • Heildstæð þjónusta fyrir fatlað fólk.
  • Þjónustuúrræði á einum stað sem tengjast ráðgjöf og stuðning búsetu og dagþjónustu fyrir fatlað fólk.
  • Samþætt þjónusta fyrir fatlað fólk og aðstandendur þeirra þannig að fjölskyldur geti leitað á einn stað eftir þjónustu
  • Samþætt við leik- og grunnskóla, liðveislu og félagslega heimaþjónustu.
  • Einfalt þjónustukerfi. 
  • Aukið vægi á þjónustu inn á heimili fólks.
  • Nýjar lausnir í þjónustu við fatlað fólk.