Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Fjárhagsaðstoð

Fjárhagsaðstoð

Umsóknir í Rafrænu Reykjavík

pdf Fjárhagsaðstoð

pdf Umboð - fjárhagsaðstoð

Um fjárhagsaðstoð

Skylt er að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar. 

Fjárhagsaðstoð til einstaklings getur verið allt að kr. 125.540 á mánuði og kr. 200.864 á mánuði til hjóna eða fólks í sambúð. Aðstoðin er óháð barnafjölda, þar sem reiknað er með að barnabætur, meðlög og barnalífeyrir mæti kostnaði vegna barna. Vaxtabætur og húsaleigubætur mæta mismunandi kostnaði vegna húsnæðis.

Heimilt er að veita einstaklingum og fjölskyldum aðstoð vegna sérstakra aðstæðna, m.a. vegna heimilisaðstoðar, náms eða óvæntra áfalla, sbr. IV. kafla reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð.