Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Barnavernd Reykjavíkur

Skreytimynd - rólur

Barnavernd Reykjavíkur
Borgartúni 12-14
105 Reykjavík
sími: 411 11 11
netfang: barnavernd@reykjavik.is

Forstöðumaður Barnaverndar Reykjavíkur er Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir.

Hlutverk Barnaverndar Reykjavíkur er að tryggja að reykvísk börn sem búa við óviðunandi aðstæður vegna vanrækslu, vanhæfni eða framferðis foreldra, eða ef óttast er að barn stefni heilsu sinni eða þroska í hættu með hegðun sinni, fái nauðsynlega aðstoð.

Mál er barnaverndarmál þegar barnaverndarnefnd hefur tekið formlega ákvörðun um að hefja könnun á málinu. Þá eru málefni barnsins unnin á grundvelli barnaverndarlaga. Barnaverndarnefnd Reykjavíkur ber ábyrgð á meðferð slíkra mála í Reykjavík.

Markmið barnaverndar er að tryggja börnum viðunandi uppeldisskilyrði. Lögð er áhersla á að styrkja fjölskyldur í uppeldishlutverki sínu og beita úrræðum til verndar einstökum börnum þegar það á við. Foreldrar geta einnig leitað eftir stuðningi vegna barns eða vegna fjölskylduaðstæðna á Þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar. Veittur er stuðningur og ráðgjöf á grundvelli laga um félagslega þjónustu.