Málefni aldraðra

Velferðarsvið ber ábyrgð á öldrunarþjónustu á vegum Reykjavíkurborgar, þ.m.t. stefnumótun og framkvæmd miðlægrar þjónustu fyrir aldraða en þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar annast framkvæmd almennrar þjónustu fyrir eldri borgara, þ.e. taka á móti umsóknum, meta og samþykkja þar sem við á. Á þjónustumiðstöðvum í hverfum Reykjavíkur eru sérfræðingar í málefnum aldraðra sem veita ráðgjöf og upplýsingar varðandi ýmis mál.