Málefni fatlaðs fólks

Þjónusta við fatlað fólk sem hefur verið veitt af Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík er nú veitt af Velferðarsviði Reykjavíkurborgar skv. breytingu á lögum um málefni fatlaðs fólks sem samþykkt voru á alþingi þann 17. desember 2010.
Breytingin felur í sér að frá og með 1. janúar 2011 hefur Velferðarsvið Reykjavíkurborgar ábyrgð á skipulagi og framkvæmd þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík.
Hvar á að sækja um þjónustu?
Sótt er um þjónustu við fatlað fólk á sérstöku umsóknareyðublaði sem er að finna hér. Sótt er um styrki til náms - og/eða tækjakaupa á sérstöku umsóknareyðublaði sem er einnig að finna hér.
Óskir þú frekar eftir að fylla út umsókn á pappírsformi þá má nálgast eyðublað fyrir umsóknir um þjónustu fyrir fatlaða hér.
Eyðublað fyrir umsókn um námsstyrk eða styrk til tækjakaupa er hér.
Þjónustumiðstöðvum í hverfum borgarinnar taka á móti umsóknum um þjónustu. Einnig er hægt að koma með umsókn í þjónustuver Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12-14.
Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkur:
Þjónustumiðstöð Vesturbæjar – Vesturgarður, Hjarðarhaga 45-47, s. 411 1700
Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, Skúlagötu 21, s. 411 1600
Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis, Síðumúla 39, s. 411 1500
Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness, Miðgarður, Gylfaflöt 5, s. 411 1400
Þjónustumiðstöð Breiðholts, Álfabakka 12, s. 411 1300
Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts, Hraunbæ 115, s. 411 1200
Umsóknir um atvinnu með stuðningi og verndaða vinnu:
Sótt er um Atvinnu með stuðningi (AMS) hjá AMS í síma 533 1370 og þar fást allar upplýsingar um úrræðið.
Sótt er um verndaða vinnu hjá Múlalundi, Blindravinnustofunni og á vinnustöðum ÖBI hjá Vinnumálastofnun. Síminn þar er 515 4580.
Þjónustumiðstöðvar taka á móti öðrum umsóknum um hæfingu eða vinnu í Reykjavík.
Trúnaðarmenn Reykjavíkur og Seltjarnarness:
Halldór Gunnarsson, s. 858 1550
Maggý Hrönn Hermannsdóttir, s. 858 1627
Framtíðarsýn Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks.
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var hafður að leiðarljósi við gerð framtíðarsýnar borgarinnar. Í því felst viðurkenning á sjálfstæðu lífi á eigin forsendum, jöfn tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu, réttur til aðstoðar við að lifa innhaldsríku lífi og viðurkenning á fjölbreytileika mannlífsins og mannréttindum allra.
Framtíðarsýn Reykjavíkurborgar
- Margbreytilegum þörfum borgarbúa verði mætt með sveigjanlegri og einstaklingsmiðaðri þjónustu sem veitt er af ábyrgð, virðingu og fagmennsku.
- Aðgengi að þjónustu verði tryggt í nærumhverfi borgarbúa.
- Jafnræði í þjónustu verði tryggt.
- Víðtækt samráð verði haft við notendur, hagsmunasamtök, starfsfólk og háskólasamfélagið um þróun þjónustunnar.
- Borgarbúar sem þurfa aðstoð í daglegu lífi hafi val um hvernig aðstoðinni við þá er háttað. Unnið verði að þróun notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar.