Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Húsaleigubætur

Húsaleigubætur

Þeir leigjendur, sem leigja íbúðarhúsnæði/íbúðarhúsnæði á vegum félagasamtaka til búsetu, eru með lögheimili í Reykjavík og sem njóta ekki vaxtabóta eiga rétt á húsaleigubótum. 

Skilyrði húsaleigubóta er að fyrir liggi, þinglýstur leigusamningur til a.m.k. sex mánaða. Námsmenn eru undanþegnir skilyrði um lögheimili.  Námsmenn eru undanþegnir skilyrði um lögheimili en þurfa þó að flytja aðsetur í húsnæðið sem tekið er á leigu.

Húsaleigubætur greiðast einungis vegna íbúðarhúsnæðis. Með íbúðarhúsnæði er átt við venjulegar og fullnægjandi heimilisaðstæður og eru lágmarksskilyrði a.m.k. eitt svefnherbergi ásamt séreldhúsi eða eldunaraðstöðu og sérsnyrtingu og baðaðstöðu, þótt íbúðin sé ósamþykkt.