Dagvist fyrir aldraða
Dagvist er stuðningsúrræði fyrir aldraða sem búa í heimahúsum. Markmiðið er að rjúfa félagslega einangrun og stuðla að því að þeir geti búið lengur heima. Í dagvist er boðið upp á tómstundaiðju, léttar leikfimisæfingar, fæði, hvíldaraðstöðu og aðstoð við böðun. Gestir dagvistar eru sóttir að morgni og ekið heim síðdegis. Dvalartími getur verið frá einum upp í fimm daga í viku. Dagvist er rekin á daggjöldum frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og með greiðsluþátttöku gesta. Dagvist fyrir aldraða sem Reykjavíkurborg rekur er á tveimur stöðum í borginni; Í Þorraseli á Þorragötu 7 og í Vitatorgi, Lindargötu.