Félagslegt leiguhúsnæði

Félagslegar leiguíbúðir eru fyrir þá sem ekki eru færir um að sjá sér og sínum fyrir húsnæði sökum lágra tekna, þungrar framfærslubyrði eða annarra félagslegra aðstæðna. Félagsbústaðir hf. eiga íbúðirnar og sjá um gerð leigusamninga, innheimtu og viðhald.
Þegar sótt er um félagslegt leiguhúsnæði veita ráðgjafar þjónustumiðstöðvanna umsækjendum upplýsingar og ráðgjöf um ferli umsókna um félagslegt leiguhúsnæði. Einnig fást umsóknir um félagslegt leiguhúsnæði, upplýsingar um biðtíma og skilyrði til að sækja um. Þá eru veittar upplýsingar um önnur úrræði eða þjónustu sem umsækjandi getur átt rétt á sem og stuðningur á biðtíma ef þörf er á.