Félagsstarf
Starfræktar eru 16 félagsmiðstöðvar víðsvegar um borgina, sem eru opnar Reykvíkingum á öllum aldri. Markmið félagsstarfsins er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun með því að bjóða upp á opið félags- og tómstundastarf auk fjölda námskeiða. Félagsstarfið er vettvangur samfunda, mannlegra samskipta og skapandi athafna. Leitast er við að virkja frumkvæði og hæfileika hvers og eins. Hádegisverður er í boði á öllum þessum stöðvum og kaffiveitingar. Að auki bjóða flestar félagsmiðstöðvarnar uppá baðþjónustu. Hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofur eru einnig starfræktar á mörgum stöðvunum.
Hver stöð býður upp á sína eigin dagskrá sem samanstendur af ýmsum spennandi hlutum. Sem dæmi má nefna: vinnustofur, hagleikssmiðjur, listasmiðjur og klúbbastarf ýmiskonar. Spilamennsku, skoðunarferðir, dans og leikfimi. Síðan eru ýmsir viðburðir árlegir og / eða tilfallandi, svo sem grillveisla, haustfagnaður og þorrablót. Lögð er áhersla á sjálfsprottið félagsstarf og hver og einn getur haft áhrif á þróun þess.