Hjúkrunarheimili
Reykjavíkurborg á og rekur tvö hjúkrunarheimili, Droplaugarstaði og Seljahlíð. Sólarhringsþjónusta er á báðum stöðum.
Droplaugarstaðir
Á Droplaugarstöðum eru 82 íbúar, allir í einbýlum með sérbaði. Á heimilinu er sjúkra- og iðjuþjálfun, öldrunarsálfræðingur og tannfræðingur. Starfrækt er hárgreiðslustofa og fótaaðgerðarstofa.
Seljahlíð
Í Seljahlíð eru mismunandi búsetuform fyrir aldraða, hjúkrunardeild og þjónustuíbúðir. Á hjúkrunardeild búa 26 einstaklingar, og 55 einstaklingar búa í þjónustuíbúð. Alls er 81 íbúi í Seljahlíð. Félagsstarf og margs konar þjónusta er fyrir íbúa hússins, svo sem matur, böðun, hárgreiðsla, fótsnyrting, sjúkraþjálfun, leikfimi o.fl. Á lóð Seljahlíðar eru 18 sjálfseignaríbúðir með brunavarnarkerfi sem tengist símavakt í þjónustumiðstöð Seljahlíðar. Íbúar þar geta tekið þátt í félagsstarfi Seljahlíðar og fengið ýmsa þjónustu.