Félagsleg ráðgjöf

Ráðgjöf við einstaklinga og fjölskyldur miðar að því að koma til móts við einstaklingsbundnar þarfir þeirra sem leita til þjónustumiðstöðvanna. Einnig veita ráðgjafar upplýsingar um möguleika á þjónustu utan þjónustumiðstöðvanna og vísa fólki á þau úrræði sem henta hverjum og einum. Markmið ráðgjafarinnar er að hjálpa fólki til sjálfshjálpar þannig að sérhver einstaklingur geti sem best notið sín í samfélaginu. Félagsleg ráðgjöf tekur m.a. til ráðgjafar vegna atvinnuleysis, veikinda, húsnæðisleysis, fjárhagsvanda, fötlunar, öldrunar, málefna útlendinga, málefna barna og ungmenna, fjölskylduvanda og áfengis- og vímuefnavanda. Upplýsingar um ráðgjör er að fá hjá þjónustumiðstöðvum borgarinnar.