Unglingasmiðjur
Starfsemi unglingasmiðjanna sniðin að þörfum unglinga 13 - 18 ára, sem eru félagslega einangraðir, hafa orðið fyrir einelti, eru óframfærnir/ óvirkir, sýna þunglyndis- og kvíðaeinkenni, hafa lítið sjálfstraust, slaka félagsfærni og/eða búa við erfið uppeldisskilyrði. Meginmarkmið starfsins eru að efla sjálfstraust, leita leiða til uppbyggilegra lausna, styrkja hópkennd og jákvæð samskipti, kenna virðingu og umburðarlyndi og auka hæfni í félagslegum samskiptum.
Starfsemin með unglingunum fer fram í skipulögðu kvöldstarfi. Vikulegir fundir eru með hópunum í þeim tilgangi að auðvelda unglingunum að tjá sig af einlægni, auka hæfni þeirra til að setja sig í spor annarra og læra að treysta hvert öðru. Einnig er lögð áhersla á einstaklingsviðtöl og persónulegan stuðning. Þá er fengist við ýmis verkefni, svo sem blaðaútgáfu, myndbandagerð, þemavinnu og listræna þjálfun. Auk þess er stunduð fjölbreytt tómstundaiðja, útivist og farið í lengri og skemmri ferðir innanlands og utan.
Unglingasmiðjan Tröð í Keilufelli 5 er stuðningsúrræði á vegum Þjónustumiðstöðvar Breiðholts og hefur starfað frá árinu 1987. Starfsemi unglingasmiðjunnar er einkum ætluð unglingum sem eiga erfitt uppdráttar félagslega af ýmsum ástæðum. Helstu markmið smiðjunnar snúa að því að efla sjálfstraust og jákvæða sjálfsmynd unglinganna, styðja þá í leit að uppbyggilegum lausnum, styrkja hópkennd og jákvæð samskipti, kenna virðingu og umburðarlyndi, auka hæfni í félagslegum samskiptum og draga úr félagslegri einangrun.