Forvarnir
Velferðarsvið ber ábyrgð á stefnumörkun í forvarnarmálum og vinnur með Forvarnarnefnd Reykjavíkuborgar sem vann forvarnastefnu sem samþykkt var í borgarráði þann 20.desember 2005. Stefnan tekur til allra barna og ungmenna frá fæðingu til tvítugs, foreldra og allra sem að málefnum þeirra og uppeldi koma. Áhersla er á að forvarnir hefjist strax í barnæsku, séu heildstæðar, víðtækar og sameini krafta og störf borgarbúa og borgarstarfsmanna.
Leiðarljós stefnunar er að skapa öllum börnum og ungmennum uppeldisaðstæður og umhverfi sem efli sjálfstraust þeirra og sjálfsmynd, einkennist af samkennd og býr yfir viðeigandi stuðningsúrræðum þegar þörf krefur.
Leiðarljós forvarnastefnunnar:
Að skapa öllum börnum og ungmennum uppeldisaðstæður og umhverfi sem eflir sjálfstraust þeirra og sjálfsmynd, einkennist af samkennd og býr yfir viðeigandi stuðningsúrræðum þegar þörf krefur.
Velferðarsvið ber ábyrgð á innleiðingu stefnunnar og eftirliti með framkvæmd. Þjónustumiðstöðvar bera ábyrgð á framkvæmd stefnunnar og nánari útfærslu hennar í samstarfi við börn og ungmenni sem og foreldra þeirra, íbúa og stofnanir sem á einn eða annan hátt koma að málefnum barna og ungmenna.
Forvarnastefnuna er að finna hér.