Heimaþjónusta Reykjavíkur

Heimaþjónusta Reykjavíkur
Álfabakka 16
109 Reykjavík
sími: 411 9600
fax: 411 9699
netfang: heima@reykjavik.is
Forstöðumaður Heimaþjónustu Reykjavíkur er Berglind Magnúsdóttir.
Frá Heimaþjónustu Reykjavíkur er veitt hefðbundin heimahjúkrun og heimageðhjúkrun. Markmiðið er að gera þeim sem þjónustunnar njóta kleift að búa heima við sem eðlilegastar aðstæður þrátt fyrir veikindi eða heilsubrest.
Hlutverk heimahjúkrunar er að sinna heimahjúkrun á þjónustusvæðinu og hafa yfirsýn yfir þá heilbrigðisþjónustu og meðferð sem skjólstæðingar Heimaþjónustu Reykjavíkur njóta í heimahúsi. Til þess að Heimaþjónusta Reykjavíkur geti sinnt hlutverki sínu þarf:
- Nána samvinnu við heilsugæslustöðvar, sjúkrahús og sjálfstætt starfandi heimilislækna.
- Hæft starfsfólk til að tryggja gæði þjónustunnar.
- Virka þátttöku í kennslu heilbrigðisstarfsfólks.
- Rannsóknir til að dýpka skilning og þekkingu og auka gæði þjónustunna
- Innlent og erlent þverfaglegt samstarf og nána samvinnu við þjónustu- og hagsmunaaðila sem vinna að velferð þeirra sem vilja dvelja sem lengst heima.