PBS


Hrósyrði

Vísa í einkunnarorðin

Takk fyrir að sýna tillitssemi og rétta upp hönd

Þið sýnið mikla virðingu með því að hlusta svona vel

Frábært hvernig þið gangið hægra megin, þetta er mjög öruggt

 

Almennara

Flott hjá þér

Glæsilegt

Frábært

Góður

Það var lagið

Þetta er gott

Stórkostlegt

Þetta er til fyrirmyndar

Þetta gengur vel

Ljómandi

Rétt hjá þér

Fínt

Dásamlegt

Meiriháttar

Þú stendur þig vel

Akkúrat

Alveg rétt

Dugleg/duglegur ertu

 

Tengt ákveðinni hegðun

Ofsalega vinnurðu vel í stærðfræðibókinni

Þú ert greinilega að vanda þig vel að skrifa

Flott hvernig þú náðir að halda ró þinni þegar hinir voru að slást

Þú ert ótrúlega flink/flinkur í þessu

Þér fer stöðugt fram

Ég er ánægð með að þú gerðir þetta svona

Þetta var mjög skynsamlega valið hjá þér

Flott hjá þér að muna þetta svona vel

Þetta er fínt, haltu svona áfram

Þú stendur þig vel í að...

Hefði ekki getað gert betur sjálfur

Þú ert búin að standa þig ótrúlega vel í dag

Þetta er alveg að koma

Ég vissi að þér tækist þetta

Þetta var mjög flott, ég er viss um að þetta mun ganga vel á morgun