Barnavernd flytur á Höfðatorg
05.06.2008
Upplestur á frétt 
Barnavernd Reykjavíkur flytur um helgina í nýtt húsnæði að Höfðatorgi, Borgartúni 10-12. Vegna flutninganna verður lokað hjá Barnavernd frá hádegi fimmtudaginn 5. júní og allan daginn föstudaginn 6. júní. Við opnum aftur mánudaginn 9. júní.
Í neyðartilvikum er hægt að ná í starfsmann Barnaverndar Reykjavíkur gegnum neyðarsíma 112 en einnig munu þjónustumiðstöðvar í hverfum taka á móti erindum viðskiptavina á meðan lokað verður. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar hjá símaveri borgarinnar, 411 1111, sem mun jafnframt annast símaþjónustu fyrir Barnavernd Reykjavíkur héðan í frá.