Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Þjónustufulltrúi á Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða hlýtur viðurkenningu frá slökkviliðsstjóra Höfuðborgarsvæðsins

29.01.2010

Upplestur á frétt 

5Skömmu eftir eldsvoðann sem nýlega varð á Hverfisgötunni og kostaði eitt mannslíf, kom Valgerður Oddsdóttir þjónustufulltrúi að máli við framkvæmdastjóra Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða og benti honum á að hugsanlegt væri að tengja saman þá staðreynd að langflestir leigendur íbúðarhúsnæðis koma á sína þjónustumiðstöð til þess að sækja um húsaleigubætur og þá nauðsyn að hafa reykskynjara og slökkvitæki í hverri íbúð, t.d. með því að skilyrða greiðslu húsaleigubóta því að þessi tæki væru til staðar.

Framkvæmdastjórinn tók hugmyndina á lofti og ræddi hana við brunamálastjóra og kynnti hana síðan fyrir yfirstjórn Velferðarsviðs. Á opnum íbúafundi með íbúum í Miðborg Reykjavíkur, þriðjudaginn 26. janúar sl. þar sem borgarstjóri var viðstaddur, kom upp umræða um brunahættu í gömlu húsunum í miðborginni, sem borgarstjóri svaraði og sagði að verið væri að vinna í. Að fundi loknum ræddi framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða áðurnefnda hugmynd þjónustufulltrúans við borgarstjóra, sem fannst hugmyndin strax góð og óskaði eftir því að framkvæmdastjórinn kynnti hugmyndina fyrir Jóni Viðari Matthíassyni, slökkviliðsstjóra Höfuborgarsvæðisins, en hann væri að vinna að þessum málum f.h. sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.

1Jóni Viðari fannst hugmyndin frábær og að loknum klukkustundarlöngum fundi framkvæmdastjóra þjónustumiðstöðvarinnar, Jóns Viðars og sviðsstjóra forvarnarsviðs slökkviðiliðsins sagði slökkviliðsstjóri að það væri alltaf gaman og því bæri að fagna þegar starfsmenn sýndu slíkan áhuga á starfi sínu að þeir kæmu fram með nýjar og framúrskarandi hugmyndir. Hann óskaði því eftir því að Valgerði yrði veitt viðurkenning frá slökkviliðinu og rétti framkvæmdastjóra þjónustumiðstöðvarinnar eitt kröftugasta og besta vasaljós sem völ er á í gjafapakkningu og bað hann að afhenda Valgerði.

Á starfsmannafundi í dag afhenti síðan framkvæmdastjórinn Valgerði þessa viðurkenningu með þeim orðum að hann óskaði þess að vasaljósið nýttist Valgerði vel í framtíðinni við leit að nýjum og flottum hugmyndum. Nú er það okkar að útfæra hugmynd Valgerðar og finna leið til þess að í framtíðinni sé hægt að tryggja það að í öllum leiguíbúðum verði bæði reykskynjari og slökkvitæki.