Styrkir til forvarnaverkefna í Reykjavík
15.02.2010
Upplestur á frétt 
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði Reykjavíkurborgar til forvarnaverkefna. Markmiðið með styrkjunum er að styrkja samstarfsverkefni á sviði forvarna til samræmis við forvarnastefnu Reykjavíkurborgar. Hámarksstyrkupphæð sem veitt er úr sjóðnum er 500.000 kr.
Upplýsingar um forvarnastefnuna og reglur sjóðsins er að finna hér á vefnum og einnig sérstök umsóknareyðublöð um styrki úr sjóðnum.
Umsóknum skal skilað til Samráðshóps um forvarnir í Reykjavík, Velferðarsviði Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík. Umsóknir má einnig senda rafrænt á netfangið: velferd@reykjavik.is.
Umsóknarfrestur er til 1. mars 2010.
Nánari upplýsingar veita Stefanía Sörheller, verkefnastjóri á skrifstofu Velferðarsviðs í síma 411-1111, stefania.sorheller@reykjavik.is og Guðrún Halla Jónsdóttir, félagsráðgjafi í Miðgarði í síma 411-1400, gudrun.halla.jonsdottir@reykjavik.is.
Meðferð umsókna fylgir almennum reglum um styrkjaúthlutanir Reykjavíkurborgar. Allar umsóknir verða lagðar fyrir Samráðshóp um forvarnir í Reykjavík til umsagnar og fyrir velferðarráð Reykjavíkur til samþykktar.