Rauðakrosshússið: Hjálparstarf á Haítí, NLP, lífstíll og næring, hamingjan og skattar
22.02.2010
Upplestur á frétt 
Í dag, mánudag, heldur enskuhópurinn áfram og fyrirlestur frá Þekkingarmiðlun um hamingjuna sem glæðir broshrukkur
nýju lífi. Þriðjudagurinn færir okkur gönguhóp og kynningu á NLP aðferðinni auk þess sem Býflugurnar eru á sínum stað.
Miðvikudagurinn hefst á einföldum og nýtanlegum aðferðum til að lifa heilsusamlegra lífi og fulltrúi frá Ríkisskattstjóra kynnir
fyrir gestum skattabreytingarnar sem urðu um áramótin og hvað þær þýða í raun fyrir landsmenn.
Hlín Baldvinsdóttir sendifulltrúi Rauða krossins sem er nýkomin frá Haítí segir frá aðkomunni þar og starfinu á fimmtudaginn.
Á fimmtudaginn eru jafnframt starfandi nokkrir hópar, tungumálahópar, fluguhnýtingar, föndur og saumasmiðja.
Sjálfboðaliðar Rauða krossins veita jafningjaráðgjöf og stuðning í Rauðakrosshúsinu og prestar/djáknar hafa viðveru
alla virka daga milli kl. 14 og16.