Reykjavíkurborg veitir styrki til velferðarmála
01.03.2010
Upplestur á frétt 
Velferðarráð Reykjavíkur úthlutaði í dag styrkjum til átján verkefna á sviði velferðarmála. Heildarupphæð styrkjanna nemur tæpum 27 milljónum króna og við úthlutun þeirra er fylgt almennum reglum um styrkjaúthlutanir Reykjavíkurborgar og reglum velferðarráðs um styrkjaúthlutanir. Við val á verkefnum var miðað við að þau féllu að áherslum velferðarráðs og voru styrkir ráðsins til hjálparstofnana m.a. hækkaðir með hliðsjón af því.
Rúmlega fimmtíu aðilar, sem sinna verkefnum og þjónustu á sviði velferðarmála, eru með þjónustusamninga við Velferðarsvið eða njóta styrkja frá velferðarráði á árinu 2010. Í heild nema þjónustusamningar og styrkir á vegum ráðsins um 175 milljónum króna í ár.
Þau verkefni sem í dag hlutu styrk fyrir árið 2010 eru:
? Ás styrktarfélag
? Átak, félag fólks með þroskahömlun
? BRYNJA, hússjóður Öryrkjabandalagsins
? Byggingafélag námsmanna
? Ferðafélagið Víðsýn
? Ferðaklúbburinn Flækjufótur
? Félagsstofnun stúdenta
? Fjölskylduhjálp Íslands
? Hhópurinn á Hátúnssvæðinu
? Höndin mannúðar- og mannræktarsamtök
? Klúbburinn Geysir
? Kvennaráðgjöfin
? Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
? Reykjavíkurdeild Rauða krossins
? Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra
? Sjálfsbjörg – höfuðborgarsvæðið
? Styrktarfélag Alþjóða geðheilbrigðisdagsins
? Umsjónafélag einhverfra