Sumarstyrkur til Reykvíkinga með fjárhagsaðstoð til framfærslu
14.07.2010
Upplestur á frétt 
Velferðarráð samþykkti á fundi sínum 7. júlí sl. að sérstakur sumarstyrkur kr. 15.000 verði greiddur til þeirra sem fá fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjavíkurborg í sumar. Ekki þarf að sækja sérstaklega um sumarstyrkinn. Jafnframt verða greiddar kr. 5.000 vegna hvers barns sem einstaklingur sem fær fjárhagsaðstoð til framfærslu hefur forsjá fyrir.
Gildir þetta einnig þegar foreldri hefur sameiginlega forsjá með barni sem ekki hefur lögheimili hjá því en þeir foreldrar þurfa að sækja sérstaklega um styrk vegna barna sinna. Rétt til fjárhagsaðstoðar til framfærslu frá Reykjavíkurborg geta átt þeir einstaklingar sem hafa tekjur undir kr. 125.540 á mánuði (200.864 f. hjón eða sambúðarfólk). Fjárhagsaðstoð til framfærslu getur numið allt að 125.540 fyrir einstaklinga eða 200.864 fyrir hjón.
Sótt er um fjárhagsaðstoð á þjónustumiðstöðvum í hverfum Reykjavíkur.