Víkingskrakkar standa sig vel í Svíþjóð
22.07.2010
Upplestur á frétt 
Nú eru um 50 strákar og stelpur úr 4.flokki karla og kvenna í knattspyrnu við keppni á Gothia Cup sem fram fer í Gautaborg. Árangur hefur verið mjög góður hingað til og er riðlakeppninni að ljúka. Bæði 4.flokkur kvenna og 4.flokkur karla eru komin áfram i A-úrslit med þvi ad sigra sína riðla. Þá er b-liðið hjá strákunum að klára sinn síðasta leik og á möguleika að spila til úrslita i A-deild. Ferðin hefur gengið vel í alla staði og krakkarnir til fyrirmyndar.