Fjölmörg viðhaldsverkefni í í Breiðholti
17.08.2010
Upplestur á frétt 
Reykjavíkurborg framkvæmir fyrir nær 550 milljónir í ár á fjölmörgum stöðum í Breiðholti. Sérstök áhersla verður lögð á leikvelli og opin svæði, sem og endurgerð gönguleiða. Við skólana verður umhverfið einnig fegrað og endurbætt. Þá verður farið í viðhaldsverkefni á 38 fasteignum. Sjá fréttina Mikill kraftur í Breiðholti frá Ráðhúsi Reykjavíkur.