Hinn árlegi útimarkaður á næsta leiti
18.08.2010
Upplestur á frétt 
Útimarkaður Íbúasamtaka Laugardals
Kæri granni!
Þarftu að rýma geymsluna? Er bílskúrinn fullur? Sultarðu of mikið? Geturðu ekki borðað allar rófurnar og berin? Viltu selja vasabrotsbækurnar sem hrúgast upp? Eru börnin vaxin upp úr playmóinu? Og hvað með ullarvettlingana sem þú ert búin að vera að prjóna síðastliðið ár?
Nú geturðu komið gullunum þínum í verð því loksins er komið að hinum árlega útimarkaði Íbúasamtaka Laugardals!
Markaðurinn verður haldinn laugardaginn 28. ágúst frá kl. 11 til 15 á Sunnutorgi við Langholtsveg og mun teygja sig inn eftir Laugarásvegi til að skapa sannkallaða götumarkaðsstemningu.
Þátttaka kostar ekkert nema þá litlu fyrirhöfn að senda tölvupóst á utimarkadur@gmail.com og panta pláss hjá markaðsnefndinni. Einnig er sjálfsagt að troða upp með tónlistaratriði, upplestur eða annað.
Reynslan hefur sýnt að á markaðinum myndast skemmtilegur hverfisbragur. Þangað kemur fólk til þess að kaupa og selja en einnig til þess að sýna sig og sjá aðra og hlusta á vini sína og granna í uppistandi eða við söng og hljóðfæraleik.
Nánar um útimarkað ÍL
Þetta verður í áttunda sinn sem íbúasamtökin halda útimarkað í hverfunum sem umlykja Laugardalinn. Fyrsta árið voru haldnir þrír markaðir en síðan var ákveðið að markaðurinn yrði haldinn árlega - síðustu helgina í ágúst, helgina eftir að fyrsta skólabjallan glymur og allir eru komnir heim úr sumarfríi. Sjá myndir frá fyrri mörkuðum á http://laugardalur.blog.is/album/Markadir/
Markmiðið með útimarkaðnum er fjölþætt, m.a. að efla samskipti á jákvæðum nótum, að skapa góðan hverfisanda og stuðla að vistvernd með því að leggja áherslu á hverskyns endurnýtingu. Og í anda vistverndar eru markaðsgestir hvattir til þess að sækja markaðinn gangandi, hjólandi eða með strætó.
Markaðsnefndina skipa: Sigríður Ólafsdóttir Skipasundi 68, Kristín Þorleifsdóttir Langhoiltsvegi 138 og Hildur Arna Gunnarsdóttir Hofteigi 52.
Vinsamlegast láttu boð út ganga til allra sem þér dettur í hug að gætu haft áhuga á markaðsstússi.