Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Grafarvogsdagurinn

30.08.2010

Upplestur á frétt 

Grafarvogur, heilsueflandi hverfi

Íbúar og fyrirtæki eru hvött til að draga fána að húni og til að skreyta hús sín í eftirtöldum litum:
Borgahverfi: Blár
Engjahverfi: Bleikur
Foldahverfi: Grænn
Hamrahverfi: Hvítur
Húsahverfi: Appelsínugulur
Staðahverfi: Fjólublár
Rimahverfi: Gulur
Víkurhverfi: Rauður

Dagskrá Grafarvogsdagsins laugardaginn 4. september 2010
9:00-11:00 Morgunkaffi í pottinum
Sundlaug Grafarvogs býður Grafarvogsbúum að gæða sér á ilmandi morgunkaffi í heitu pottunum.

9:00-17:00 Opið hús í Heilsuakademíunni í Egilshöll
Frítt í tækjasal Heilsuakademíunnar á Grafarvogsdaginn. Auk þess býðst gestum tækifæri til að mæta í eftirtalda kynningartíma: kl. 9:00 Herþjálfun; kl. 10:00 Tabata; kl. 10:00 Boxbrennsla og kl. 11:00 Tarzan fyrir börn. Léttar veitingar frá Hreysti í boði.

10:00-12:00 Hátíðarhöld við íþróttamiðstöðina Dalhúsum
Skemmtidagskrá á vegum Fjölnis
Kassaklifur í salnum á vegum skátafélagsins Hamars
10:00 Skólahljómsveit Grafarvogs leikur nokkur létt lög
10:15 Afhending Umhverfis- og fegrunarverðlauna hverfisráðs Grafarvogs
10:30 Afhending Máttarstólpans, viðurkenning hverfisráðs Grafarvogs fyrir framúrskarandi framlag til félagsstarfs og menningar í hverfinu
10:30 Danssýning frá Dansskóla Ragnars
10:45 Grunnskólaboðhlaup Grafarvogs, boðhlaup milli nemenda í 1.-7. bekk grunnskólanna í hverfinu, ein stelpa og einn strákur úr hverjum árgangi.
11:15 Danssýning frá Dansskóla Ragnars

11:00 Skólahljómsveit Grafarvogs
Skólahljómsveitin leikur nokkur létt lög við hjúkrunarheimilið Eir.

11:00-12:30 Sögugangan
Örlygur Halldórsson, tengdasonur Þorgeirs Jónssonar, síðasta bóndans í Gufunesbæ, leiðir gesti um Gufunessvæðið. Farið verður yfir sögu Gufunessvæðisins, öskuhauganna og Áburðarverksmiðjunnar.  Auk þess mun Örlygur fara yfir staðarnöfn og örnefni sem því miður virðast vera að hverfa úr daglegu tali.

12:00-15:00 Opið hús hjá Skátafélaginu Hamar
Klifurveggur við skátaheimilið
Kynning á starfinu
Leikir og söngur
  
12:00-16:00 Skotfélag Reykjavíkur
Innanhússkeppnisgreinar í skotfimi kynntar og hægt verður að skjóta af loftrifflum og loftskammbyssum félagsins undir leiðsögn reyndra keppenda SR. Aldurstakmark er 18 ár en 15-17 ára með skriflegt leyfi frá foreldrum/forsjáraðilum fá einnig að skjóta.

13:00-15:00 Opið hús í Borgarholtsskóla
Í anddyri er kynning á starfsemi skólans og námsleiðum, kaffihús og stimpill í ratleik.

13:00-17:00 Opið hús á Korpúlfsstöðum
Korpúlfar
, samtök eldri borgara í Grafarvogi, opna aðstöðu sína fyrir gesti og gangandi milli kl. 13:00 – 16:00. Sýning á verkum félagsmanna.
KorpArt-hópurinn á Korpúlfsstöðum opnar vinnustofur sínar í tilefni Grafarvogsdagsins. Gestum gefst tækifæri til að skoða verk listamannanna.
Skólahljómsveit Grafarvogs leikur nokkur létt lög í portinu kl. 13:30.

13:00-17:00 Opið hús hjá Íslenska gámafélaginu
Opið í hús hjá Íslenska gámafélaginu í Gufunesi allir hjartanlega velkomnir. Boðið verður upp á ruslabíla- og mótorhjólarúnt. Þá gefst gestum tækifæri til að skoða og kynna sér metanbíla. Kynning verður á starfseminni og nýjungum í flokkun. Leiðsögn og kynning á Endurvinnsluþorpinu í Gufunesi sem verið er að reisa. Strætóferðir frá Gufunesbæ.
Skólahljómsveit Grafarvogs leikur nokkur létt lög kl. 14:00.

13:00-17:00 Opið hús Foldasafni
Leikið með liti hverfanna. Lánþegar aðstoða við að búa til flottar sólir, eina í hverjum lit, þeir frá ræmur í lit sins hverfis og festa svo við sólirnar sem verða víðsvegar um safnið.

14:00-16:00 Opið hús á skautasvellinu í Egilshöll
Skautafélagið Björninn verður með kynningu á íshokkí og listskautum. Frítt á svellið. Hokkí: kennsla og kynning kl. 14:00 – 15:00. Listskautar: sýning kl. 15:15 – 15:30; kennsla og kynning kl. 15:30 – 16:00.

14:00  Leikur við Dalhús
Meistaraflokkur karla: Fjölnir – Fjarðabyggð. Grafarvogsbúar, mætum og styðjum strákana okkar til sigurs!

13:00-13:30 Helgistund undir berum himni við Gufunesbæ
Ungir Grafarvogsbúar leiða helgistundina ásamt sr. Lenu Rós Matthíasdóttur. Þema stundarinnar er „Marglitt mannlíf“. Vox Populi leiðir söng undir stjórn Guðlaugs Viktorssonar.

13:00-17:00 Hátíðarhöld við frístundamiðstöðina Gufunesbæ

13:00 Kaffihús, andlitsmálning, strandblak,, leikir, hjólabrettaaðstaða, minigolf, pylsusala, hoppukastali, veggjaklifur, bókabíllinn Höfðingi
13:30  Aflraunakeppni,
14:00  Frisbeegolf, útieldun
14:00  Danssýning frá Dansskóla Ragnars í Hlöðunni

15:00  Fjölskyldukemmtun á sviði
Tónlistaratriði, þar á meðal:
Skólahljómsveit Grafarvogs
Tónlistaratriði frá félagsmiðstöðvunum
Kristmundur Axel
Tónlistaratriði

Fjölskyldan skemmtir sér saman.
Frír aðgangur.
Munið að börn eru á ábyrgð foreldra/forsjáraðila.

*********************************************

Ratleikur um Grafarvog. Safnaðu stimplum. Glæsilegir vinningar í boði.

Stimpla/svör ratleiksins skal skrifa á dagskrána og skila henni ásamt nafni og símanúmeri á eftirtöldum stöðum: ÍTR, Egilshöll, Dalhúsum eða Foldasafni. Glæsilegir vinningar í boði, m.a. frá Hamborgarabúllunni, Sambíóunum, Skautasvellinu Egilshöll og veitingastöðum í Spönginni.
5 stimplar/svör gilda til þátttöku.
Nöfn vinningshafa verða birt í næsta Grafarvogsblaði.

Hér er hægt að nálgast prentvæna útgáfu af dagskránni (PDF 176KB).

*********************************************

Dagskráin getur tekið breytingum.