Borgarstjóri heimsótti Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts
30.08.2010
Upplestur á frétt 
Jón Gnarr, borgarstjóri, heimsótti Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts þann 9.júlí 2010 og átti þar ágætan fund með starfsfólki stöðvarinnar,fulltrúnum frá grunnskólunum sjö, leikskólunum ellefu, íþróttafélögunum Fylki og Fram, þremur íbúasamtökum á svæðinu, ÍTR, hverfaráðunum tveimur,lögreglunni, kirkjunnar mönnum og Heilsugæslunni Árbæ. Samtals var á fimmta tug manna á fundinum sem stóð í einn og hálfan tíma. Með borgarstjóra í för var aðstoðarmaður hans, Heiða Kristín Helgadóttir.
Jón Gnarr hafði áhuga á að setja sig inn í þau mál sem hér brenna heitast og lúta að þjónustu borgarinnar og þörfum íbúanna. Sólveig Reynisdóttir, framkvæmdastjóri stöðvarinnar, hafði stuttan inngang þar sem hún lýsti aðstæðum í Árbæ og Grafarholti en fundurinn var síðan í umræðuformi; fundarmenn viðruðu þau málefni sem þeim voru hugleiknust og borgarstjórinn svaraði. Samræðan var upplýsandi og gefandi og snérist mjög um aðstæður barna og fjölskyldna í nýjustu hverfunum, Úlfarsárdal, Grafarholti og Norðlingaholti, og uppbyggingu þjónustunnar þar. Börnum fjölgar sífellt í umdæmi þjónustumiðstöðvarinnar en hefur hins vegar fækkað síðustu árin í öllum öðrum hverfum borgarinnar. Fundarmönnum fannst of hægt ganga að flytja til fjármuni og mannafla innan borgarkerfisins til að koma til móts við þá þróun. Dagvistarmál í Norðlingaholti voru í brennidepli, einnig aðstaða barna í Grafar- og Norðlingaholti til íþrótta- og tómstundaiðkana, áhættuhegðun því samfara, húsnæðismál grunnskólanna, umhverfismál, ráðningamál og margt fleira. Fram kom að samheldni er hér mikil meðal íbúanna í öllum hverfum umdæmisins, vilji til framfara og þróunar er sterkur og margt í góðu horfi.
Borgarstjóra var boðið að koma í frekari heimsóknir til að kynna sér aðstæður og viðhorf í hverfinu og þáði hann það. Það var á Jóni að heyra að hann ætlaði framvegis að nýta föstudagana sérstaklega til að fara á ýmis mannamót að kynnast sjónarmiðum borgarbúa.