Baráttuhópur um “bætt veðurfar”
02.09.2010
Upplestur á frétt 
Baráttuhópur um “bætt veðurfar”
Mikill árangur af starfsemi hópsins.
Í allt að fjögur ár hefur starfað hópur í Félagsmiðstöðinni Hæðargarði 31 sem nefnir sig Baráttuhóp um “bætt veðurfar”. Í hópnum er fólk sem er vitanlega afar veðurglöggt, eins og kollegar þeirra á Dalvík, en það sem þessi hópur hefur einkum beint kröftum sínum að er að vinna að bættu veðurfari. Töluverður ágreiningur hefur verið um það í hópnum hvað felist í markmiðinu “bætt veðurfar”.
Hvað svo sem því líður, þá liggur það sannanlega fyrir að veðrið hefur batnað gífurlega á síðustu mánuðum a.m.k. á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu. Um að svo sé hefur verið algjör samstaða og telur hópurinn það sér til tekna. Páll Bergþórsson hefur verið verndari þessa hóps en hann hittist mánaðarlega yfir vetrartímann.
Í Hæðargarði 31 verður “Alls konar” í vetur í samræmi við orð borgarstjóra Reykjavíkur í kosningabaráttunni.
Úr liðlega 50 möguleikum er úr að velja hvað varðar námskeið og félagsstarf. Dæmi úr starfinu: Hláturjóga, tónlistarhópur, World Class-hópur, tölvuleiðbeiningar, magadans, bútasaumur, glerskurður, bókmenntahópur, þegar amma var ung, gönuhlaup, leiklist, gáfumannakaffi, thachi, myndlist, spænska, ættfræði, postulínsmálun. framsagnarhópur að ógleymdu Æðsta ráðinu, og Morgunstundinni með Steinunni Finnbogadóttur. Alltaf heitt á könnunni í Betri stofunni á morgnana við Hringborðið.
Allir alltaf velkomnir eins og venjulega..
Á morgun föstudaginn 3. september kl. 14:00 er Hausthátíð og kynning á félagsstarfinu í Hæðargarði 31. Svavar Knútur kemur með litla gítarinn, Hjördís Geirs kemur með stóra gítarinn, leikskólabörn frá Jörfa taka lagið og allir mæta í sínu fínasta pússi og gæða sér á dýrindis hnallþórum og ilmandi kaffi.
Allar upplýsingar í síma 411-2790
Ásdís Skúladóttir verkefnisstjóri
Ráðagerði
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31
s. 411-2790
g. 693-9376