Tökum þátt og tilnefnum til Hvatningarverðlauna velferðarráðs Reykjavíkur en frestur til að skila tilnefningu er til 27. febrúar næstkomandi.
Hjá Velferðarsviði starfar fjöldi fólks sem hefur lagt alúð í starf sitt hvort sem þau starfa í heimaþjónustu, heimahjúkrun, þjónustumiðstöðvum eða þjónustukjörnum svo eitthvað sé nefnt. Starfsstaðir hafa sína sérstöðu og innan þeirra starfa hópar og einstaklingar að ýmsum verkefnum.
Ákveðið var að framlengja áður auglýstan frest til að senda inn tilnefningar vegna hvatningarverðlauna velferðarráðs. Framlengdur frestur er til 27.febrúar næstkomandi. Starfsmenn og samstarfsaðilar eru hvattir til að tilnefna einstakling, starfstað, hóp/verkefni sem vakið hefur athygli fyrir eftirtektaverða alúð, þróun og/eða nýbreytini í velferðarþjónustu árið 2011.
Hvatningarverðlaunin voru aðgerð í starfsáætlun Velferðasviðs síðasta árs og eru hluti af því að leggja rækt við hvatningu og skapa hvetjandi vinnustaðamenningu sem ýtir undir sterka sjálfsvirðingu og stolt starfsmanna. Hvetjandi starfsumhverfi stuðlar að aukinni starfsánægju starfsmanna, betri frammistöðu og þjónustu til notenda.
Markmið hvatningarverðlaunanna er að örva og vekja athygli á því mannbætandi og gróskumikla starfi sem fer fram í velferðarþjónustu borgarinnar. Verðlaunin eiga að vera viðurkenning til verðlaunahafa og staðfesting þess að viðkomandi sé fyrirmynd annarra á því sviði sem um ræðir.
Hvatningarverðlaunin verða veitt í fyrsta sinn árið 2012.
Meðfylgjandi er kynningarbréf um hvatningarverðlaun velferðarráðs, tilnefningaeyðublað og auglýsing um hvatningarverðlaunin.