Dæmi um hegðunarleiðréttingar
Tekið á iðjuleysi
Eftirfarandi aðferðum er ráðlegt að beita þegar nemandi sinnir ekki verkefnum sem hafa verið sett fyrir eða er almennt áhugalaus um verkefni sín. Í fyrsta lagi skal kennari koma í veg fyrir að aðrir nemendur verði fyrir truflun og að bekkurinn haldi sér að vinnu.Í öðru lagi þarf að koma nemandanum aftur að verki. Kennurum reynist oft vel að fara í gegnum eftirfarandi skref:
- Veita nemendum sem eru að vinna athygli og hvatningu, staldra við og svara spurningum ef þess er þörf
- Taka nemandann sem ekki fylgir fyrirmælum afsíðis
- Endurtaka fyrirmæli fyrir hópinn/bekkinn ef með þarf
- Gefa nemandanum aftur skýr fyrirmæli og fylgja þeim eftir
- Hrósa fyrir samvinnu
- Halda áfram að veita nemendum sem eru að vinna athygli
Kennari ætti að forðast í lengstu lög að beina óhóflegri athygli að nemanda sem er ekki að vinna. Þess í stað ætti kenna að sýna nemendum sem fylgja strax fyrirmælum athygli og áhuga.
Brugðist við ögrandi hegðun
Nauðsynlegt er að hafa nokkur atriði í huga þegar tekist er á við ögrandi hegðun. Að öllum líkindum veit nemandinn að hann mun fá athygli frá kennaranum sem sér sig (hugsanlega) tilneyddan til þess að bregðast við. Ennfremur býst nemandinn við því að aðrir bekkjarfélagar veiti samskiptunum athygli og sýni jafnvel beinan/óbeinan stuðning og velþóknun. Það má því segja að ögrandi nemandi ætli sér markvisst að vekja ákveðin viðbrögð hjá kennara með því að brjóta reglurnar. Þegar kennarinn ætlar sér að leiðrétta nemandann er búið að setja á svið valdabaráttu þar sem nemandinn er í aðalhlutverki og heldur öllum þráðum í hendi sér.
Hvernig getur kennari tekið á ögrandi hegðun nemanda?Hér eru nokkur mikilvæg atriði:
- Tala einslega við nemandann
- Skilgreina vandamálið eins hlutlaust og hægt er
- Biðja nemandann um að leysa vandann
- Gefa nemandanum valkosti
- Hrósa fyrir samvinnu
Þegar tekið er á ögrandi hegðun þarf að leggja áherslu á að nemandinn leysi vandan sjálfur þar sem hann. Hlutverk kennara á einungis að felast í að bjóða upp á valmöguleika.Varist að einangra nemandann og setja hann í ómögulega stöðu með því bjóða t.d. uppá einn valkost. Mikilvægt er að aðrir nemendur verði sem minnst varir við átökin og að kennarinn missi aldrei stjórn á skapi sínu. Fyrir suma nemendur er það mjög umbunandi.
Tekið á ókurteisi
Hvernig getur kennari brugðist við ókurteisi án þess að bekkjarkennsla verði fyrir truflun? Nokkrar leiðir eru til þess að bregðast við ókurteisi á árangursríkan hátt:
- Veita þeim nemendum sem eru að vinna athygli
- Gefa ókurteisa nemandanum til kynna að málinu verði fylgt eftir þegar kennarinn hefur tíma t.d. að loknum tíma
- Halda kennslu áfram eins og ekkert hafi í skorist
Þegar nemandi sýnir ókurteisi eða vanvirðingu er mikilvægt að kennari bregðist við á markvissan hátt í stað þess að láta tilfinningar ráða för. Kennari staldri við áður en hann svarar, tali rólega, hrósi þeim nemendum sem eru að vinna og ræði síðan við ókurteisa nemandann. Þegar talað er við nemandann ætti að benda honum rólega og ákveðið á að hegðunin hafi verið óviðeigandi og komi þetta fyrir aftur munu afleiðingar fylgja. Enn fremur ætti kennari að hrósa nemanda fyrir að hafa fylgt fyrirmælum þegar hann var stöðvaður.
Ath: Ef nemandi heldur áfram að trufla ætti kennari að setja öðrum nemendum fyrir smávægileg einstaklingsverkefni s.s. að lesa. Tala síðan einslega við nemanda og veita honum áminningu eða setja viðurlög.
Sá árangur sem næst þegar tekist er á við óviðeigandi hegðun veltur á hegðun þess sem sér um leiðréttinguna. Ef viðkomandi er rólegur og sýnir virðingu aukast líkurnar á því að stöðva megi óæskilega hegðun og þannig er komið í veg fyrir að hegðun stigmagnist.
- Fara rólega og markvisst nær nemanda
- Tala einslega við nemanda
- Tala rólega við nemanda
- Tala með virðingu við nemandann, hrósa fyrir samvinnu
- Lágmarka ógnandi hegðun
- Halda hæfilegri fjarlægð
- Vera í sömu augnhæð ef mögulegt
- Nota stuttar og hnitmiðaðar setningar
- Beina athygli að hegðun sem vænst er
- Draga til hlés ef hegðun eykst
Tekið á pirringi
Oft getur verið erfitt að átta sig á því hvort nemandi sé pirraður. Líkamsstelling, svipbrigði og stuttaraleg svör geta gefið vísbendingar um pirring sem kennari ætti að bregðast við. Það er nauðsynlegt að þekkja merki um pirring og taka á hegðuninni svo nemandinn geti sem fyrst farið að vinna.
Hér eru nokkrar leiðir til þess að draga úr pirringi og koma nemanda að verki.
- Bera kennsl á pirringinn
- Endurtaka til hvers er ætlast
- Láta í ljós áhyggjur
- Veita svigrúm
- Sinna öðrum nemendum
- Aðstoða nemanda við að koma sér að verki
Árangursríkar aðferðir til þess að draga úr pirringi
- Viðurkenning kennara og stuðningur
- Veita svigrúm
- Gefa val
- Leyfa nemanda fara í verkefni sem hann hefur gaman af
- Nálægð við kennara
- Vinna sjálfstætt
- Verkefni sem krefst hreyfingar
- Slakandi verkefni
- Fá nemanda til þess að vinna að plani
Að setja mörk
Þegar nemandi neitar að fylgja skýrum fyrirmælum er mikilvægt að bregðast við með markvissum hætti. Kennari kynnir nemanda hvaða valkostir eru í stöðunni, beinir athyglinni frá sjálfum sér og að valinu. Eftirfarandi skref eru mikilvæg:
- Kynna æskilega hegðun og hvaða neikvæðu afleiðingar munu fylgja því að fara ekki eftir fyrirmælum. Nemandinn hefur val og verður að taka ákvörðun
- Veita nemanda smá umhugsunar frest, sinna öðrum nemendum á meðan
- Hrósa fyrir samvinnu ef nemandinn fylgir fyrirmælum
- Beita viðurlögum ef þess er krafist