Aftur á forsíðu borgarhlutans.
 Hausthátíð
 Laugardalsvöllur
Laugardalshöll

Heimaþjónusta

Félagsleg heimaþjónusta er fyrir þá sem búa í heimahúsum og geta ekki séð hjálparlaust um heimilishald og persónulega umhirðu vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, veikinda, barnsburðar eða fötlunar. Þjónustan skiptist í meginatriðum upp í þrjá þætti, þ.e. félagslegan stuðning, aðstoð við persónulega umhirðu og aðstoð við heimilishald. Þjónustan er fyrir alla aldurshópa. Almenn þjónusta er veitt á daginn, en hægt er að sækja um innlit eða styttri viðveru á kvöldin og um helgar, ef þörf er á.

Þjónustan er margbreytileg og reynt er að mæta þörfum hvers og eins. Félagslegur stuðningur, hvatning og samvera eru mikilvægir þættir í starfinu. Jafnframt aðstoðar starfsfólk félagslegrar heimaþjónustu við almenn heimilisstörf. Starfsfólkið vinnur í nánu samstarfi við starfsfólk heimahjúkrunar, þegar við á, með það að markmiði að samþætta þjónustuna og veita betri þjónustu.

Umsókn um félagslega heimaþjónustu  (PDF skjal)
Umsókn um kvöld og helgarþjónustu  (PDF skjal)


Umsóknum skal skilað til Þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis, Síðumúla 39, 108 Reykjavík.
Eftir að umsókn berst fær umsækjandi heimsókn frá matsfulltrúa, sem metur aðstæður og þörf fyrir þjónustu. 
Allar nánari upplýsingar um þjónustu eru veittar í síma 411-1500.







 

 

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is