Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Áslaug María Friðriksdóttir

Áslaug María Friðriksdóttir

Áslaug María Friðriksdóttir

Fædd 20. júlí 1969

Netfang Áslaugar er aslaug@sja.is

Áslaug býr í Þingholtsstræti 21. Hún er uppalin í Reykjavík, dóttir Friðriks Sophussonar forstjóra og Helgu Jóakimsdóttur, hárgreiðslumeistara og alexandertæknikennara. Sambýlismaður Áslaugar er Hjálmar Edwardsson.

Námsferill
Gagnfræðapróf frá Réttarholtsskóla 1985.
Stúdent frá Menntaskólanum við Sund 1989.
BA í sálfræði frá Háskóla Íslands 1992.
MSc í Vinnusálfræði, University of Hertfordshire, Englandi, 1995

Starfsferill
Ýmis sumarstörf við fiskvinnslu, bankastörf og garðyrkju.
Sjálfstæð verkefni í upplýsingatækni 1996.
Félagsmálaráðuneytið, Úttekt á þjónustu við fatlaða í Reykjavík 1996, sérverkefni vegna fyrirhugaðs flutnings málefna fatlaðra frá félagsmálaráðuneyti til Reykjavíkur.
Félagsmálaráðuneytið, deildarsérfræðingur 1996 – 2000.
Íslenska Vefstofan, verkefnastjóri, 2000 – 2001.
Sjá viðmótsprófanir ehf. 2001 – 2006. Ein af stofnendum Sjá viðmótsprófana ehf. árið 2001. Sjá er fyrirtæki sem sinnir vefráðgjöf og aðstoðar fyrirtæki við að bæta vefsíður sínar og skilja notendahegðun.
2001 - 2006 Fjöldi fyrirlestra, greinaskrifa, námskeiðahalds og ráðgjafaverkefna sem tengjast uppbyggingu og notkun ytri og innri vefja, 2001 – 2006.
Varaborgarfulltrúi frá 2006.

Almenn félagsstörf
Formaður FSÖ foreldra- og styrktarfélags Öskjuhlíðarskólans
Setið í Úrskurðarnefnd félagsþjónustu sveitarfélaga síðan 2003.
Starfað með SKÝ – upplýsingatæknihópur síðan 2005.

Pólitískur ferill
Kosinn varaborgarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn 2006.
Formaður Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík.
Í stjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna.
Í miðstjórn frá landsfundi Sjálfstæðisflokksins árið 2007.

Núverandi nefndastörf á vegum Reykjavíkurborgar
Menningar- og ferðamálaráð
Velferðarráð
Hverfisráð Miðborgar

Áslaug er ekki með viðtalstíma en hægt er að senda henni tölvupóst í netfangið aslaug@sja.is