Sóley Tómasdóttir

Fædd 12. maí 1974.
Netfang Sóleyjar er soley.tomasdottir@reykjavik.is
Veffang Sóleyjar er http://soley.blog.is/blog/soley/
Sóley er fædd í Reykjavík 12. maí 1974. Hún er dóttir Guðrúnar Jónsdóttur og Tómasar Jónssonar. Sóley er gift Aart Schalk viðskiptafræðingi og á með honum tvö börn, Önnu, f. 1999 og Tómas, f. 2002. Þau búa að Ljósvallagötu 12.
Námsferill
BA í uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands 1998
Stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1994
Grunnskólapróf úr Digranesskóla 1989
Starfsferill
Borgarfulltrúi 2009-
Varaborgarfulltrúi 2006-2009
Deildarstýra barnasviðs í Miðbergi 2004-2007
Framkvæmdastýra Auglýsingastofu Skaparans 2002-2004
Rannsóknastjóri Hvíta hússins (síðar ABS-fjölmiðlahúss) 2000-2002
Sérfræðingur hjá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands 1998-2000
Stundakennari í Aðferðafræði við Félagsvísindadeild Háskóla Íslands, vor 1999 og 2000
Lánasjóðsfulltrúi Stúdentaráðs Háskóla Íslands 1997-1998
Stuðningsfulltrúi á sambýlinu Byggðarenda 6 með námi 1996-1998
Leiðbeinandi í Lommedalen skole, Noregi 1994-1995
Ritstörf
Konur með einn í útvíkkun fá enga samúð, Forlagið 2002 (ein fjögurra ritstýra).
Almenn félagsstörf
Fjölmörg ábyrgðarstörf af ýmsu tagi fyrir félagasamtök.
Pólitískur ferill
Ritari Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs
Ráðskona í Femínistafélagi Íslands
Mannréttindanefnd 2005-2008
Umhverfisráð 2005-2007
Strýrihópur Náttúruskólans 2005-2006
Stjórn Kvenréttindafélags Íslands 2005-2007
Vinnuhópur um gerð Mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar 2005-2006
Nefndarstörf á yfirstandandi kjörtímabili
Borgarráð
Skipulagsráð, varaáheyrnarfulltrúi
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur