Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Jón Gnarr

Jón GnarrJón Gnarr er fæddur 2. janúar árið 1967. Hann var snemma ódæll og til vandræða. Á unglingsárum varð hann pönkari og þekktur undir nafninu Jónsi Pönk.

Netfang Jóns Gnarr er borgarstjori@reykjavik.is.

Eftir grunnskólapróf frá Héraðsskólanum Núpi við Dýrafjörð sótti Jón Gnarr ýmsa framhaldsskóla, m.a. Flensborgarskóla í Hafnarfirði, Fjölbrautarskólann í Ármúla, Fjölbrautaskólann í Breiðholti og Menntaskólann við Hamrahlíð. Hann staldraði þó stutt við á hverjum stað í einu og lauk ekki stúdentsprófi.

Það má kannski segja að Jón hafi fyrst fundið sína hillu sem starfsmaður á Kópavogshæli árin 1985-1988. Eftir það varð hann næturvaktmaður á Kleppi og fluttist svo til Svíþjóðar árið 1990.

Í Svíþjóð starfaði Jón m.a. hjá bílaframleiðandanum Volvo og má vafalaust sjá handverk hans á síðustu eintökunum af Volvo 240, en Jón var aðallega í hurðunum.

Árið 1992 tók við tímabil hjá Jóni þar sem hann sá fjölskyldu sinni farborða með akstri leigubifreiðar hjá Bæjarleiðum, nánar tiltekið bíll númer 198. Á þeim árum sem Jón ók leigubíl lærði hann á Reykjavíkurborg eins og lófann á sér og þar má segja að hann hafi endanlega lagt grunninn að grínferli sínum, enda ansi margar skrautlegar persónur sem á vegi hans urðu á þeim tíma.

Það var svo árið 1994 sem félagi hans Sigurjón Kjartansson fékk hann til að skrifa og leika í grínsketsum í þættinum Heimsendi á Rás 2. Samstarfið vakti athygli og fljótlega fóru menn að líta á þá félaga sem framtíðarmenn í íslensku gríni.

Sú spá rættist, því frá árinu 1995 varð tvíeykið alræmt í sjónvarpi og útvarpi og símalínur Ríkisútvarpsins byrjuðu að glóa. Fólk hneykslaðist gríðarlega yfir húmornum og útvarpsráð hélt sérstakan fund um grín þeirra félaga.

Undir merkjum Tvíhöfða sáu þeir félagar um daglega morgunþætti á hinum ýmsu útvarpsstöðvum frá 1997 til 2002. Tvíhöfði hefur alls gefið út fimm geislaplötur sem allar eru orðnar safngripir.

Árið 1997 færði Jón sig yfir til Stöðvar 2 sem einn af grínhópnum Fóstbræðrum sem gerðu alls fimm þáttaraðir allt til ársins 2001. Fóstbræður náðu fljótt hylli áhorfenda og þykja enn í dag einhverjir bestu gamanþættir sem gerðir hafa verið hér á landi.

Eftir ýmsar tilraunir bæði í útvarpi og sjónvarpi sló Jón aftur í gegn í Næturvaktinni, haustið 2007. Í kjölfarið fylgdu hinar vinsælu Dagvakt, Fangavakt og bíómyndin Bjarnferðarson. Fyrir túlkun sína á Georgi Bjarnfreðarsyni fékk Jón Edduverðlaun árið 2010, en alls hefur Jón fengið á annan tug Edduverðlauna á sínum ferli sem handritshöfundur, framleiðandi og leikari.

Auk þessa alls hefur Jón fengist við auglýsingagerð, bókaskrif, sviðsleik og uppistand og þekkt er sýningin “Ég var einu sinni nörd”, sem gekk í Loftkastalanum veturinn 1999 til 2000. Jón er meðlimur í Félagi íslenskra leikara og Félagi leikskálda og handritshöfunda.