Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Einar Örn Benediktsson

Netfang: einar.orn.benediktsson@reykjavik.is

Einar Örn BenediktssonMér er ekki alveg sama, enda fæddist ég 1962. Ég á ættir að rekja til söngleiksins My Fair Lady og hefur líf mitt verið næstum því einsog hinn besti söngleikur. Skemmtilegt, erfitt, létt, fræðandi og á tíðum mjög dramatískt.

Námsferill:
Melaskóli
Hagaskóli
Menntaskólinn við Hamrahlíð, stúdentspróf 1982.
University of Westminster, BA meistarapróf í fjölmiðlafræði 1986 Honours in Media st

Starfsferill:
Ég fékk stúdentspróf frá MH og eftir það var ég póstbifreiðarstjóri þangað til ég fór í nám í fjölmiðlafræði í London. Ég lauk því og fékk BA gráðu 1986.Samhliða þessu hef ég verið í hljómsveitum einsog KUKL, Sykurmolunum og núna er ég í Ghostigital.
Ég stofnaði fyrsta netkaffið Síberíu 1995, en áður hafði ég stofnað ásamt félögum mínum Smekkleysu SM en undanfari þess fyrirtæki má segja að hafi verið hljómplötuútgáfan Gramm.
Ég er í dag einn eigenda Grapewire ehf og hef verið framkvæmdastjóri þess til dagsins í dag.
Ég sit líka í stjórn Smekkleysu.
Í dag á ég ekki gullfisk, en hundurinn Nóbel er minn fylgifiskur á göngutúrum um strandlengju Reykjavíkurborgar.

Pólitískur ferill:
Kosinn í borgarstjórn Reykjavíkur fyrir Besta Flokkinn í maí 2010

Nefndir og ráð:
Borgarráð, varamaður
Menningar- og ferðamálaráð, formaður
Íþrótta- og tómstundaráð, varamaður
Hverfisráð Grafarvogs
Stjórn Strætó bs.
Stjórn Sorpu bs., varamaður