Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Óttarr Ólafur Proppé

Óttarr Ólafur ProppéFæddur 7. nóvember 1968. Óttarr er alinn upp í Hafnarfirði og Bandaríkjunum, en flutti til Reykjavíkur um leið og hann hafði aldur til og hefur búið þar síðan. Sambýliskona Óttars er Svanborg Þórdís Sigurðardóttir bóksali og söngkona.

Netfang: ottarr.olafur.proppe@reykjavik.is

Námsferill
Martin Luther King jr, Elementary School
Öldutúnsskóli
Flensborgarskóli
Pennridge High School

Starfsferill
Óttarr hefur starfað við bóksölu frá 1987, hjá Almenna Bókafélaginu, Máli og menningu, Eddu útgáfu, Pennanum Eymundsson og bókaútgáfunni Crymogea.
Óttarr hefur starfað sem tónlistarmaður með hljómsveitunum; HAM, Funkstrasse, Rass, Dr. Spock ofl. Hann hefur einnig starfað við kvikmyndagerð sem handritshöfundur, leikari og hljóðmaður. Í gegnum tíðina hefur hann og komið að verkefnum við auglýsingagerð og fjölmiðlun allskonar.

Almenn félagsstörf
Stjórnarmaður í menningarfyrirtækjunum Glysgirni ehf. Og Spock ehf.
Stjórnarmaður í STEF frá 2009.

Pólitískur ferill
Kosinn í borgarstjórn Reykjavíkur fyrir Besta flokkinn 2010.

Nefndarstörf:
Menntaráð
Skipulagsráð, varamaður
Hverfisráð Miðborgar

Fulltrúaráð SSH, varamaður