Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Páll Hjaltason

Páll Hjaltason

Fæddur í Reykjavík 7. ágúst 1959 og ólst upp við sjóinn í vesturbænum. Bjó í rúman áratug erlendis og kynntist vel borgum Evrópu og Vesturheims. Hann hefur starfað sem arkitekt í Reykjavík siðastliðin 20 ár, hannað fjölda húsa á höfuðborgarsvæðinu og fengið ýmsar viðurkenningar og verðlaun fyrir störf sín. Páll býr í Skerjafirði með eiginkonu, syni og hundi.

Netfang: pall.hjaltason@reykjavik.is

Námsferill
Melaskóli
Hagaskóli
Menntaskólinn í Reykjavík, stúdentspróf 1979
University of Liverpool, BA próf í arkitektúr 1983
Scholae de Lorenzo de Medici, Flórens, diploma í höggmyndalist og kvikmyndagerð 1985
Columbia University, New York, MS próf í arkitektúr 1988

Starfsferill
Starfað sjálfstætt og á ýmsum arkitektastofum í USA 1988-1992
Sjálfstætt starfandi arkitekt í Reykjavík 1991-2000
Meðeigandi  m3 Arkitektar  2000-2005
Meðeigandi  +Arkitektar  2005-

Allskonar
Leiðbeinandi við arkitektadeild Listaháskóla Íslands 2003-2009
Fjöldi fyrirlestra um arkitektúr og hönnun
Sýningarstjóri og sýningarhönnuður á fjölda hönnunarsýninga, erlendis og hér heima
Sýningarstjóri og arkitekt íslandsskálans á EXPO 2010 í Shanghai, Kína

Almenn félagsstörf
Stjórnarmaður í Hönnunarvettvangi
Stjórnarmaður í Foreldrafélagi Öskjuhlíðarskóla

Pólitískur ferill
Kosinn 1.varamaður í borgarstjórn Reykjavíkur fyrir Besta flokkinn í maí 2010

Núverandi nefndarstörf á vegum Reykjavíkurborgar
Skipulagsráð, formaður
Umhverfis- og samgönguráð, varamaður
Heilbrigðisnefnd
Svæðisskipulagsráð SSH, formaður
Aðalskipulag – stýrihópur, formaður
Ferlinefnd Reykjavíkur, formaður
Stjórnkerfisnefnd
Hverfisráð Vesturbæjar, varamaður

Páll er með viðtalstíma í Borgartúni 12-14 eftir hádegi á miðvikudögum
Tekið er á móti viðtalsbeiðnum hjá Skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar
í síma  411 3000 eða netpósti skipulag@reykjavik.is