Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hjálmar Sveinsson

Hjálmar SveinssonÉg er fæddur tíunda desember 1958. Ólst upp á ljóðrænu heimili í Hafnarfirði og á bænum Hlíð í Gnúpverjahreppi. Bjó á árunum 1986 til 1997 í Berlín. Þar sá ég Múrinn falla og veit síðan þá að ekkert er ómögulegt. Römmustu virki óréttlætis geta fallið á svipstundu.

Netfang: hjalmarsveinsson@gmail.com

Menntun:
BA í heimspeki og bókmenntafræði Háskóli Íslands
MA í heimspeki, þýskum fræðumn og bókmenntum frá Freie Universität Berlin

Hef starfað lengi við fjölmiðla, þar af síðustu 12 árin sem dagskrárgerðarmaður við Rúv. Umsjónarmaður þáttanna Spegillinn og Krossgötur.

Hef skrifað og gefið út nokkrar bækur um íslenska listamenn. Stofnaði árið 2000 fræðibókaritröðina ATVIK og bókaútgáfun OMDÚRMAN árið 2007. Starfaði í mörg sumur sem leiðsögumaður á hálendi Íslands.


Núverandi nefndastörf á vegum Reykjavíkurborgar

Borgarráð, varamaður
Skipulagsráð
Umhverfis- og samgönguráð
Stjórn Faxaflóahafna, formaður
Hverfisráð Miðborgar, varamaður
Svæðisskipulagsráð SSH, varamaður