Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Margrét Kristín Blöndal

Netfang: maggaogstina@hotmail.com

Margrét Kristín Blöndal

Ég heiti Magga Stína og er úthverfahúsmóðir, varaborgarfulltrúi, og tónlistarkona og nemi svo eitthvað sé tekið til. Foreldrar mínir eru Haraldur S. Blöndal og Sólveig Hauksdóttir.
Börnin mín heita Salvör Gullbrá, fædd 1992, Vaka, fædd 2000 og Kolbeinn Orfeus, fæddur 2004.
Tónlist hefur verið minn förunautur allar götur og hef ég verið svo lánsöm að fá að starfa við hana undanfarna áratugi bæði sjálfstætt og í leikhúsum en auk þess hef ég starfað við fiskvinnslu verslunarstörf, bókavörslu og dagskrárgerð hjá Ríkisútvarpinu.
Ég gekk í Melaskóla, Hagaskóla, Menntaskólann við Hamrahlíð og legg nú stund á nám við tónsmíðadeild Listaháskóla Íslands.
Var kosinn varaborgarfulltrúi fyrir Besta flokkinn og sit í Mannréttindaráði, er varamaður í umhverfis og samgönguráði auk þess sem ég sit í hverfaráði Kjalarness.
Er bæði dæl og ódæl.

Núverandi nefndarstörf á vegum Reykjavíkurborgar
Mannréttindaráð

Umhverfis- og samgönguráð, varamaður

Hverfisráð Kjalarness

Hjúkrunarheimilið Skógarbær, stjórn