Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Sigurður Björn Blöndal

S. Björn Blöndal

 

f. 8. des 1969
Netfang: sbblondal@gmail.com

Sigurður Björn er fæddur í Reykjavík. Hann ólst upp á Hallormsstað í Skógum til átta ára aldurs, þegar hann flutti með fjölskyldu sinni til Hafnarfjarðar þar sem hann sleit barnsskónum. Foreldrar hans eru Guðrún Sigurðardóttir og Sigurður Blöndal.
Sambýliskona Sigurðar Björns er Sigurbjörg Gylfadóttir, menntaskólakennari, og eiga þau tvo syni, Odd og Gylfa. Fjölskyldan býr á Brekkustíg í Reykjavík.


Starfsferill
2009 -  Sjálfstætt starfandi ráðgjafi og kvikmyndagerðarmaður.
2008-2009 Gutenberg ehf. Framkvæmdastjóri. Eftir sameiningu Gutenberg, Odda og Kassagerðarinnar, október 2009, sem sérfræðingur varðandi sameininguna og sérlausnir til janúar 2009.
2006-2007 Gutenberg ehf. Markaðsstjóri.
2001-2006  Heimilistæki ehf / hf. vörustjóri (product manager.)
1999-2001 Reynisson & Blöndal: Stjórnarformaður, starfsmaður.
1998-1999 Taktur ehf: Sölumaður.
1996-1998 Austri vikublað / Dagur-Tíminn: Blaðamaður á Vikublaðinu Austra (Egilsstöðum) og hluta tímabilsins fréttaritari Dags-Tímans á Austurlandi.
1995-1996 Skólaliði við grunnskólann á Hallormsstað.
1994 Hraðfrystihús Eskifjarðar: Háseti á ísfisktogurum HE, Hólmaborg og Hólmanesi.
1994 Tónlistarmaður
1991-1993 ÁTVR: Starfsmaður á lager. Auk þess starfandi sem tónlistarmaður.
1984 -1991 Ýmis sumarstörf ásamt námi og tónlistariðkun.

Kvikmyndagerð
Hef unnið að kvikmyndagerð með hléum frá árinu 1991.  Helstu verk á því sviði eru:

2008- „Óþekkt fólk“; Kvikmynd í þróun. Framleiðandi.
2005 “Bítlabærinn Keflavík” heimildarmynd. Framleiðandi
2002 ‘Úr dagbók slökkviliðsins’ Leikin fræðslumynd um brunavarnir. Framleiðandi.  'Memphis' stuttmynd. Framleiðandi 2001  'Lifandi Dauðir' Heimildarmynd um Ham. Meðframleiðandi, viðfangsefni
1994  ‘Lengi lifi’ Sjónvarpsmynd um lokatónleika HAM (RÚV 1994) –Meðframleiðandi. Aðstoð við framleiðslu . Kom fram í myndinni sem meðlimur Ham.
1992  ‘Sódóma Reykjavík’ Kvikmynd. Lék lítið hlutverk auk þess sem hljómsveitir mínar Ham og Funkstrasse áttu flest lög í myndinni.
1991  ‘Ham í Reykjavík’ Heimildarmynd á sölumyndbandi – Kom fram í myndinni og vann við handrit, aðstoðaði við klippingu.

Tónlistarmaður
Hef starfað sem tónlistarmaður með hléum frá árinu 1988, lengst af sem bassaleikari hljómsveitarinnar HAM (1988- 1994 – aftur 2001-.) Einnig sem sólógítarleikari hljómsveitarinnar RASS frá árinu 2000.
Plötur:
'HAM': (1988-1993, 2001) plötur: Hold (Smekkleysa 1988), Buffalo Virgin (One Little Indian 1989), Saga Rokksins (Nordisk Musikdisk 1993), Lengi Lifi (Smekkleysa 1994), Dauður Hestur (Skífan 1995), Skert Flog (Hitt records 2001). Einnig lög á ýmsum safnplötum þám Sódóma Reykjavík (Skífan 1992) ,)
'Funkstrasse' (1991- ): lög á ýmsum safnplötum þám Sódóma Reykjavík (Skífan 1992); Núll og Nix ( MM11991); Alltaf sama svínið ( Smekkleysa 2004)
RASS: (2000-´) plötur: Andstaða 2005 ( Smekkleysa 2005)
Auk þess leiguspilari á nokkrum verkefnum.

Menntun:
1986-1988 Flensborgarskóli
1988 Kvennaskólinn í Reykavík
1989 Flensborgarskóli
1995 Skotveiðileyfi
1996 Meirapróf
2008 Endurmenntun HÍ, fjármál fyrir stjórnendur.

Núverandi nefndarstörf á vegum Reykjavíkurborgar
Stjórn Faxaflóahafna
Innkauparáð, varamaður
Stjórn Reykjanesfólkvangs, varamaður
Hjúkrunarheimilið Skógarbær, fulltrúaráð, varamaður